Þungunarrof er læknisfræðileg aðgerð sem leiðir til þess að meðgöngu er hætt og fóstrið deyr. Þungunarrof var bannað í 30 ríkjum þar til Hæstiréttur Bandaríkjanna kvað upp dóm í málinu Roe gegn Wade árið 1973. Sá dómur gerði þungunarrof löglegt í öllum 50 ríkjum en veitti þeim heimild til að setja reglur um hvenær á meðgöngu má framkvæma þungunarrof. Núna verða öll ríki að leyfa þungunarrof snemma á meðgöngu en mega banna það á síðari stigum.